07.07.08
labbilabb
Jæja, long time no see!
Kom heim úr frábærri næstum 4 vikna útskriftarferð þann 10. júní, þar var ekki verið að spara við sig í mat né drykk… kom heim nokkrum peningum fátækari og kílóum ríkari en með bros á vör og smávegis brúnku. Var voða lengi að koma mér inn í rútínuna, var að byrja í nýrri vinnu og ætlaði síðan aldeilis að tækla hlaupaplan, var með takmarkið að þjálfa mig upp í að geta hlaupið 5 km á fínu nýju hlaupaskónum mínum. Eftir nokkrar misheppnaðar og sársaukafullar skokkæfingar komst ég að þeirri niðurstöðu að hlaup hentuðu mér ekki í bili vegna beinhimnubólgu. Var ansi svekkt og fúl yfir þessu enda orðin mjög spennt fyrir því að hlaupa. Dó þó ekki ráðalaus og fann mér labbiplan á netinu hjá honum ,,vini mínum” Hal Higdon sem ég er byrjuð að fylgja, gekk núna áðan í 35 mínútur í glampandi sól og steikjandi hita með góða tónlist í eyrunum. Hugmyndin er síðan að fylgja þessu plani auk þess að lyfta tvisvar í viku og gera líka einhverjar þolæfingar aðrar en hlaup í ræktinni, s.s. þrep eða skíðavél. Voðalega finnst mér samt erfitt að fara inn á líkamsræktarstöð þegar veðrið er svona fínt! (hef einmitt ekki fengið mig til þess ennþá….) Vonandi næ ég þá smám saman að léttast og ná upp þoli svo ég geti farið að reyna við hlaupin aftur.
Mataræði: ágætt fyrir utan bakkelsi og nammi sem alltaf er frammi á borði í vinnunni og of auðvelt er að grípa í með kaffinu, ekki síst þegar maður er þreyttur og stressaður. Þarf líka að passa að reyna að borða einhvern millibita (skyr) milli morgunmatar og hádegismatar, oft er svo mikið að gera í vinnunni fyrir hádegi að ég kemst ekki einu sinni á klósettið, hvað þá til að fá mér eitthvað að borða!
Voðalega er ég orðin þreytt á því að vera alltaf á byrjunarreit. Þetta verður síðasta skiptið!
Þyngdin núna: í kringum 84 kg (var 80 áður en ég fór út)
Heiða sagði,
föstudagur, 11 júlí, 2008 kl. 16:00
Þetta lekur af þér
Maður verður líka aðeins að lifa og þar sem þú varst í svona frábærri ferð þá tekurðu bara á því núna í staðinn
75kg sagði,
mánudagur, 14 júlí, 2008 kl. 12:04
Velkomin aftur, gangi þér rosalega vel, þú getur þetta sko vel!!!