08.14.08
Raita
Langaði bara að deila með ykkur nýjustu uppgötvuninni minni, tilbúinni raita jógúrtsósu frá Patak’s… ég er voða mikið fyrir jógúrtsósur og hef oft gert mína eigin með ab-mjólk, hvítlauk og gúrku en þessi er voða þægileg þegar maður hefur ekki tíma fyrir þannig dúllerí. Hún inniheldur líka myntu sem gefur afar skemmtilegt bragð og kemur vel út á hollustuskalanum, 64 kcal í 100 g og það eina óholla sem hún inniheldur er pínulítið af sykri (1,8 g í 100 g).
Mér finnst voða gott að nota hana með allskyns mat og líka hægt að skella henni oná brauð, hrökkbrauð eða hrískökur eða dýfa grænmeti í hana sem snakk. Er akkúrat núna að baka hnetusteik frá móður náttúru í ofninum og ætla að hafa sósuna með henni.
Og nei, ég er ekki á prósentum hjá Patak’s en ég er opin fyrir viðræðum.
Annars er ég bara löt löt stelpa, bæði í hreyfingu og mataræði, er reyndar að sjá fyrir endann á ákveðnu verkefni sem hefur hangið yfir mér í allt sumar og valdið töluverðu stressi, mér finnst ég allavega hafa aðeins betri tíma núna til að hugsa um sjálfa mig og það er gott.
Meira síðar…