Monthly Archives: júní 2011

Mama’s back

Hæ hó og húllum hæ, tæplega 3 ár liðin og ýmislegt hefur drifið á daga Gellunnar, hún útskrifaðist úr náminu sínu 2009, fékk fullorðinsvinnu, flutti í úthverfi með manni, hundi og ketti… og barn bættist svo í hópinn fyrir tæplega sex mánuðum síðan!

Oooooog – hætta að tala um sjálfa sig í þriðju persónu, ok.

Ég las svo hrikalega inspírerandi átaksblogg fyrir nokkrum dögum síðan að ég er orðin alveg óð í að fara að nota bloggið aftur. Ég tók mig til og las allar gömlu færslurnar á blogginu mínu og hafði mjög gaman af. Það komu greinilega nokkur góð tímabil hjá mér þar sem ég var svo dugleg og var að ná árangri en ég hélt aldrei nógu lengi út. Vonandi verður núna breyting þar á.

Ég kom sem betur fer ágætlega undan meðgöngunni og grenntist meðan ég gekk með barnið (þurfti að passa kolvetnin vel þar sem ég greindist með meðgöngusykursýki) og er núna 6 kg léttari en áður en ég varð ólétt. Vigtaði mig í morgun (reyndar búin að borða og hálfklædd) en þá stóð vigtin í 90,3 kg. Ég vil þó númer eitt tvö og þrjú fara að stunda reglulega hreyfingu sálartetursins vegna, og til þess að ná íþróttalegum markmiðum… aðrar pælingar mega bíða.

Er komin með byrjenda-ræktarplan þar sem ég hef ekkert hreyft mig af viti í ca. ár núna (var með slæma grindargliðnun á meðgöngunni og gat orðið varla gengið, er ekki ennþá orðin góð), fer 3x í viku, lyfti tvisvar og fer 1x í þol, svo fer ég í göngutúra með barnavagninn hina dagana. Er ekki búin að ákveða hvaða leið ég fer í mataræðinu, lykilatriðið er að það sé eitthvað öfgalaust sem ég get haldið mig við og sem mér líður vel af.

Er súper ánægð með mig að hafa drifið mig í ræktina áðan, var svo engan veginn í stuði og komst heldur ekkert í stuð á æfingunni sjálfri, en kláraði hana samt. Hitaði upp í korter á bretti og tók þar þrjá einnar mínútu skokkspretti og mér til mikillar gleði leið mér ekki eins og legið ætlaði niður úr buxunum, eins og síðast þegar ég prófaði að skokka fyrir 2 vikum síðan. Grindarbotnsæfingar FTW. Fór síðan í gegnum nýja lyftingaplanið mitt og býst fastlega við harðsperrum á morgun.

Ég gæti haldið áfram með endalausa ritræpu en klukkan er orðin seint og ég ætti að fara að sofa til að vakna hress og kát með stelpunni minni í fyrramálið… later!