Ég er ennþá að prófa mig áfram til að finna hvað virkar best fyrir mig. Ég er að reyna að láta hollt mataræði og hreyfingu haldast í hendur á þann hátt sem fellur vel að mínu lífi.
Nokkrar einfaldar reglur um mataræði:
- ég borða ekki nammi, kex, kökur, snakk, ís eða sykrað gos (held diet gosi í miklu lágmarki)
- ég hef nammidag einu sinni í viku þar sem bannvörurnar eru leyfilegar (í hófi þó)
- ég drekk ekki áfengi nema í mesta lagi einu sinni í viku og þá helst léttvín með mat, ég drekk mjög lítið af bjór (ég hef gengið í gegnum tímabil í mínu lífi þar sem ég drekk bjór á hverjum degi, believe it or not)
- ég takmarka brauðneyslu mjög mikið, borða flatkökur og hrökkbrauð í staðinn
- ég nasla mikið á ávöxtum og grænmeti milli mála
- ég borða mikið af skyri (bý mér gjarnan til skyrboozt úr ósætu skyri, ávöxtum og safa, namminamm)
- ég reyni að drekka 2L af vatni á dag
- ég skipti feitum sósum algjörlega út fyrir sósur úr 10% sýrðum rjóma eða ab-mjólk
Er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera í ræktinni, mun þó líklega leggja aðaláherslu á brennslu til að byrja með og reyna að fara að lágmarki þrisvar í viku.