Um mig

Ég er 24 ára nemi við HÍ, bý í Reykjavík og er í sambúð.

Mér hefur þótt ég of þung alveg síðan ég man eftir mér… þó ef ég hugsa betur um það þá var ég bara nokkuð eðlileg á mínum unglingsárum (14-16 ára). Þegar ég flutti svo úr foreldrahúsum 16 ára gömul þá byrjuðu kílóin að læðast á mig hægt og hægt, svona 3-4 kg á ári. Ég tengi þetta mest við óreglulegt mataræði og svo var ég kannski ekki alltaf að borða það hollasta. Um jólin 2004 var ég komin upp í 91 kg en fannst ég samt ekkert voða feit (er 1.70 á hæð). Fyrri hluta ársins 2005 missti ég svo 13 kg á afar óskynsamlegan hátt, var að hreyfa mig mjög mikið en borða alltof lítið, reykti mikið í staðinn (var ekki reykingamanneskja áður og er það ekki í dag.)

Svo hætti ég þessu rugli og bætti aðeins á mig yfir sumarið. Byrjaði að æfa í WorldClass í september (hef mætt ca. tvisvar í viku) og vigtin og fituprósentan hefur staðið í stað síðan þar sem ég hef ekki verið að fylgjast nógu vel með mataræðinu. Núna stendur til að snúa þessu öllu á betri veg…

1 ummæli »

  1. Lífstíll sagði,

    Ég er í nánast sömu sporum og þú. Fyrir 2 árum missti ég fullt af kg. á óskynsamlegan hátt, og þegar ég hætti því ég fékk ég allt til baka og meira til. Nú er ég að breyta um lífstíl til að líða betur og sýna sjálfri mér að það sé mun betra að gera þetta á heilbrigðan hátt. Endilega kíktu á mig við tækifæri. Rosalega flottur árangur sem þú hefur náð! :)


Rita ummæli